Kór FFÍ



Kór Flugfreyjufélags Íslands

Í tilefni 50 ára afmælis Flugfreyjufélags Íslands var ákveðið að stofna kór þar sem vitað var um marga söngfugla innan hópsins. Það var spenna og óvissa í loftinu þegar farið var af stað og þurfti að vanda val kórstjóra því það voru ekki margir sem komu til greina. Viðkomandi þurfti að þekkja aðeins til vinnutíma og mögulega óreglulegrar ástundunar. Það var aðeins ein persóna sem stóð upp úr og það var Magnús Kjartansson enda giftur inn í Flugfreyjufélagið.
Litli Flugfreyjukórinn hóf starfsemi sína í lok október 2003. Æfingar urðu strax með reglulegu sniði eða tvisvar í viku og var markmiðið sett hátt enda afmælisárið framundan. Fyrsta uppákoman var “Hin Hliðin” í janúar 2004 þar sem kórinn sté á stokk í fyrsta skipti og vildi sanna sig og tilveru sína þó undirbúningur hefði ekki verið langur.
Síðan þá hafa uppákomur verið margar og vel heppnaðar og hefur kórinn fest sig vel í sessi og er orðinn einn af flottustu kvennakórum landsins. Ekki  hefur heldur fundist neitt stéttarfélag flugfreyju og þjóna nokkurs staðar í heiminum, sem getur státað af kórstarfi.
Æfingar kórsins fyrir starfsárið 2006-2007 eru hafnar og eru þær á mánudögum og fimmtudögum og hefur tekist að lokka marga nýja félaga í hópinn.
Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa,  að kynna sér kórstarfið, því skemmtilegri og uppbyggilegri tómstundaiðkun fyrirfinnst ekki, hvaðþá heldur félagsskapur.