Sæl öll.Orlofssjóður FFÍ hefur nú milligöngu um sölu á Útilegukortinu til félagsmanna sinna.Kortið kostar í lausasölu 13.900 kr. Félagsmenn geta keypt kortið á skrifstofu FFÍ á 10.000 kr og fá í kaupbæti afsláttarkort sem gefur afslátt af ýmsri þjónustu víðs vegar um landið. Þess má geta að verð fyrir tjald og 4 manna fjölskyldu á tjaldsvæði 1 nótt er svipað og verð til félagsmanna fyrir kortið.Þeir sem hafa áhuga geta nálgast kortið frá og með fimmtudeginum 1. júlí. Hægt er að koma með bankaauðkennislykil og millifæra á staðnum á Orlofssjóð, eða vera búin(n) að því og koma með kvittun. Kortið verður aðeins afhent gegn greiðslustaðfestingu.Reikningur Orlofssjóðs er 515 14 160424 og kt: 5501695099.Með von um gott útlilegusumar.Orlofssjóður.