Frétt

18.6.2010

Starfsmenntasjóður

Kæru félagsmenn.

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að  þann 15.júní var úthlutað í fyrsta sinn úr Starfsmenntasjóði Flugfreyjufélags Íslands.

Úhlutað var 19 styrkjum til margvíslegs náms. Stærsti hluti styrkþega var úr hópi þeirra sem stunduðu nám í stjórnun og forystu við HR, en einnig var úthlutað styrkjum vegna náms við HÍ, náms í fararstjórn og ferðamennsku, hjúkrunarnáms, innanhússarkitektúr og Prisma svo eitthvað sé nefnt.

Næsta úthlutun verður 15. október og hvetjum við ykkur til að kynna ykkur úthlutunarreglurnar á forsíðu ffi.is og sækja um fyrir 1.október.

Með kveðju

F.h. stjórnar Starfsmenntasjóðs FFÍ.

Ástríður Ingólfsdóttir.