Frétt

24.12.2009

Nýr kjarasamningur milli FFÍ og Icelandair

Kæru félagsmenn.

Eftir tæplega 13 tíma fund hjá Ríkissáttasemjara í gær náðist samkomulag milli deiluaðila. Nýr kjarasamningur milli FFÍ og Icelandair verður formlega undirritaður á 55 ára afmæli Flugfreyjufélags Íslands 30. desember. Atriði í nýjum kjarasamningi verða síðan kynnt á félagsfundi strax í byrjun nýs árs.

Með jólakveðjum og óskum um farsæld á nýju ári.

Stjórn og samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands.